Vinur Geirs verður landstjóri IMF á Íslandi

Guðmundur Magnússon bloggari og eyjuritstjóri segir á vefsíðu sinni að starfsmaður IMF sé væntanlegur til Íslands og kallar hann landstjóra, hvort sem það er nú í gamni eða alvöru. Guðmundur segir orðrétt: “Nú skilst mér að komin sé niðurstaða um hver þetta verður. Hann heitir Franek Rozwadowski og er hagfræðingur að mennt. Hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir Sjóðinn víða um heim á undanförnum árum. Var hér á dögunum að svipast um eftir húsnæði fyrir sig og fjölskylduna.”

Mig langar til að bæta aðeins við þetta þeim upplýsingum að téður sérfræðingur er gamall skólabróðir og stórvinur Geirs Haarde frá Brandeis University en þar tók Geir BA gráðu sína í hagfræði sem Wien styrkþegi. Þeim Geir og Franek varð vel til vina svo og Hjálmari H. Ragnar rektor LHÍ sem var við nám í Brandeis á sínum tíma.

Þessi ráðning er ekki nýlega ákveðin því í nóvember síðastliðnum var búið að tala við Franek kallinn um að koma til Íslands.  Rozwadowski er starfsmaður Alþjóðagjaldeyrisssjóðsins og hefur starfað við ámóta þrifaverkefni í Eistlandi og Makedóníu á undanförnum árum.  Ég ætla því alls ekki að segja að þetta sé einhver frændhygli eða vinavæðing sem hér er á ferð. En mér finnst krúttlegt að það skuli endilega hittast svo á að nýi landstjórinn sé gamall drykkjubróðir og frater Geirs. Þetta fellur svo skemmtilega inn í hina rammíslensku hefð að alltaf skuli ráða í góðar stöður frændur, vini eða skólabræður og best er ef þetta getur allt verið sami maðurinn.  Geir hefur áreiðanlega séð fyrir sér að geta rölt yfir til Franek á næstu skrifstofu í ráðuneytinu og rifjað upp gamla daga milli þess sem þeir félagarnir streittust við að bjarga landinu. En nú situr Franek uppi með Jóhönnu og Steingrím.

Þess má geta að téður baunateljari IMF kemst ekki á lista yfir fræga nemendur frá Brandeis en Geir á sitt sæti þar. Þriðji frægi Íslendingurinn sem stúderað hefur í Brandeis er Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og viðskiptajöfur.


6 svör to “Vinur Geirs verður landstjóri IMF á Íslandi”

  1. Guðjón Ólafsson segir:

    Mér finnst áhugavert það þeir hjá Brandeis lista Angelu Davis og Shen Tong sem fræga nemendur sína, en hvorugt þeirra ætti líklega mikið upp á pallborðið hjá téðum Horde.

  2. Anna segir:

    Enn verið að hafa okkur að fíflum.

  3. Gunnar Gunnarsson segir:

    Já áhugavert – í þessu ljósi mætti líka athuga:

    Umfjöllun Moggans um nýútkomna skýrslu Jóns Danílessonar, er etv vafasöm þar sem bæði ritstjóri og höfundur eru/voru á LSE?

    Eða þá að hvað með Joe Borg, sjávarútvegs komissar EU frá Möltu sem var skólabróðir Ólafs Ragnars í Manchester – kannski eru þeir að plotta eitthvað?

    Einnig væri athugavert að kanna tengsl Ögmundar Jónassonar og Gordon’s Brown – etv. hjálpaði Gordon Ögmundi óbeint að komast að kjötkötlunum með terrorista löggjöfinni, þeir voru jú báðir í háskólanum í Edinborg á sama tíma?

    Áhugavert eða slúður?

  4. hildigunnur segir:

    Hjálmar er reyndar Ragnarsson, ekki Ragnar, þó pabbi hans hafi skrifað sig Ragnar sem ættarnafn.

  5. Top Posts « WordPress.com segir:

    [...] Vinur Geirs verður landstjóri IMF á Íslandi Guðmundur Magnússon bloggari og eyjuritstjóri segir á vefsíðu sinni að starfsmaður IMF sé væntanlegur til [...] [...]

  6. Ólafur segir:

    Við eigum von á góðu ef Eistlandsmódelið verður haft til hliðsjónar :=(

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.