Mér blöskrar algerlega að sjá lítt dulbúna fasista í tilfinningalegu uppnámi æpa um það að Hallgrímur Helgason rithöfundur eigi ekki skilið starfslaun rithöfunda. Í dag flæðir hystería svartstakkanna inn á amx.is og lítil stúlka skrifar af vandlætingu á Deiglunni. Hún eins og aðrir morfískir fótgönguliðar flokksins telur að Hallgrímur eigi ekki skilið starfsfrið því hann sé á móti valdstjórninni.
Hægri sinnaðir Íslendingar í valdastöðum hafa alltaf viljað þagga niður í listamönnum sem eru ekki þægir. Sennilega óttast þeir í hjarta sínu alla sem búa yfir frumlegri hugsun því hún er þeim sjálfum óþekkt. Sagan geymir dæmi um þetta. Alþingi svipti bæði Þórberg Þórðarson og Halldór Laxness ritlaunum og skáldastyrkjum vegna pólitískra skoðana þeirra. Hallgrímur Helgason á skilið þriggja ára ritlaun og hann getur verið stoltur af skítkasti og nagi hægri pressunnar því hann er í góðum félagsskap.
Ungir fasistar dagsins virðast telja að þeir sem þiggja ritlaun úr opinberum sjóðum eigi að sleikja höndina sem fóðrar þá og ekki dirfast að bíta í hana. Venjulegt fólk með gott hjartalag veit vel að skylda okkar allra er fyrst og fremst við sannleikann. Þetta vita líka skáld og rithöfundar og daginn sem þeir fara að hlífa þríhrossum þessa lands og fara að hreiðra um sig í kjöltu valdhafa hætta þeir að vera sannir.
febrúar 7, 2009 klukkan 11:28 am |
Hallgrímur vinnur þó fyrir laununum sínum, meira en hægt er að segja um marga aðra … Fáránleg umræða sem hefur verið um þetta. Tek undir hvert orð hjá þér.
febrúar 7, 2009 klukkan 12:38 pm |
Þó ekki væri nema til að upplifa viðbrögð þeirra sem telja styrkþega eiga að sleikja höndina sem fóðrar þá; þegja og vera þægir.
febrúar 7, 2009 klukkan 1:39 pm |
Væntanlega vita þeir heldur ekki að ríkið sem slíkt kemur afskaplega lítið að því að velja hverjir fá hvað.
febrúar 7, 2009 klukkan 4:12 pm |
Algjörlega sammála þér Páll.
febrúar 7, 2009 klukkan 4:16 pm |
Hvernig er það, er ekki faðir fyrrverandi menntamálaráðherra gamall leikari sem er á listamannalaunum, og hefur verið þar áskrifandi í mörg ár?
febrúar 7, 2009 klukkan 4:48 pm |
Hallgrímur á þessi laun fyllilega skilið. Annars hefði verið fínt að setja DOddson á listamannalaun ef það kæmi honum úr Seðlabankanum, maðurinn er náttúrulega snillingur.
febrúar 7, 2009 klukkan 5:18 pm |
Ritstjórar AMX gætu boðið Flokknum að ritskoða allt sem kemur frá þeim er þiggja listamannalaun. Listamennirnir verða héðan í frá látnir skrifa undir plagg með þessu ákvæði vilji þeir þiggja launin.
febrúar 7, 2009 klukkan 5:20 pm |
Ég hef ákvaflega gaman af þessari AMX sem ég kalla í daglegu tali Viagra síðuna… Vegna þess að þarna eru á ferð gamla valdastéttinn, karlmenn komnir yfir miðjan aldur, líklegast orðnir getuleysi.. Til þess að leyna getu leysi þeirra þá stofna þeir síðu.. AMX er því einskonar viagra getulausra varðhunda valdastéttarinnar, þar sem þeir ýlfra og reyna að glefsa máttlítið..
En veist hvaðan nafnið er komið?
febrúar 7, 2009 klukkan 5:23 pm |
Hah, ég sé þá alveg fyrir mér í huganum, Laxnes og Þórberg, berjandi bimmann hans Geirs að utan, annar með stafinn, hinn á galosíum, arka svo upp í Valhöll og froðufellandi og öskrandi. Hah. eða þannig. jamm. Hægrisinnaðir Íslendingar í valdastöðum. Ha? Má ekki lyfta mótmælunum upp á hærra örlítið hærra plan?
febrúar 7, 2009 klukkan 5:43 pm |
IB- nei ég veit ekki hvaðan nafnið er komið en segðu okkur það endilega.
febrúar 7, 2009 klukkan 6:28 pm |
Ég hef ekki hugmynd um hvað AMX þýðir.. ef maður googlar þetta þá koma yfirleit einhver stríðstól upp.. Kæmi reyndar ekki óvart að nafnið væri vísun í eitthvað svoleiðis..
Á heimasíðunni stendur að fyrsti sérhæfði fréttaskýringarvefur hérlendis.. og einhverstaðar stendur að hann sé fremstur sem slíkur.. Spurning hann sé bæði fremstur meðal sérhæfðra og almennra fréttaskýringavefja á landinu..
febrúar 7, 2009 klukkan 7:45 pm |
Höfum við (þ.e. þjóðin) efni á að hafa einhverja vitleysinga á heiðurslaunum? Sama hvar í flokki þeir standa.
Sá ekki betur í blöðunum um daginn að flokkur Baugs væri farinn að sparka í rithöfund Baugs. Á Hallgrímur orðið eitthvað lítið af vinum?
febrúar 7, 2009 klukkan 8:24 pm |
Nöturlegustu ummælin um Hallgrím Helgason er að finna í grein Fréttablaðsins þann 5. Febrúar. Samfylkingarmaðurinn Helgi Hjörvar greiðir þessu hálmstrái náðarhöggið. Nú þarf Samfylkingin ekki lengur á hjarðhegðun Hallgríms að halda og þá er hann er miskunnarlaust skorinn niður. Hreinsanirnar ganga inn í flokkinn og nú er tími játniganna kominn.
Þessi leið hefur áður verið farin.
febrúar 7, 2009 klukkan 9:13 pm |
AMX er rammpólitískur áróðursvefur. Það má eflaust með góðum vilja kalla þetta bix fyrsta sérhæfða fréttaskýringarvef hérlendis. “Sérhæfingin” hlýtur þá að vísa til einbeitts vilja til að sjá veröldina með augum Davíðs Oddssonar. Það væri heiðarlegra að segja það hreint út.
Ég veit ekki til þess að Hallgrímur Helgason sé á heiðurslaunum og reikna þess vegna ekki með því að Steinarr Kr. sé að vísa til hans.
Ég tek ofan fyrir Páli Ásgeiri og lýsi mig algjörlega sammála því sem hann skrifar hér að ofan.
febrúar 7, 2009 klukkan 9:42 pm |
Svo þeir sem ekki eru fylgjandi svona spreði eru sjálfkrafa fasistar og svartstakkar? Já sæll væni
febrúar 7, 2009 klukkan 11:37 pm |
Páll J.
Hvað með sjálftökuspreðið hans Davíðs? Hver borgar það? Einkaframtakið?
febrúar 7, 2009 klukkan 11:56 pm |
Skoðanakúgun er ekki bundin við hið opinbera. Höndin sem fóðrar getur líka komið úr einkageiranum.
febrúar 8, 2009 klukkan 12:13 am |
[...] Hanski Hallgríms tekinn upp Mér blöskrar algerlega að sjá lítt dulbúna fasista í tilfinningalegu uppnámi æpa um það að Hallgrímur [...] [...]