Bjarni Ármannsson fyrrverandi bankastjóri hefur endurgreitt Glitni 370 milljónir til þess að friða samvisku sína og freista þess að fá fyrirgefningu syndanna. Allar fjárhæðir er rétt að skoða í samhengi. Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar námu tekjur Bjarna á árinu 2007 rétt rúmlega 43 milljónum á mánuði. Upphæðin sem hann endurgreiddi eru því 8,6 mánaðarlaun hans. Samkvæmt launatöflum Samtaka atvinnulífsins gæti Bjarni hafa þénað rúmlega 200 þúsund krónur á mánuði á sama tíma í lægst launuðu störfum sem bjóðast að teknu tilliti til aldurs hans og rúmlega 10 ára starfsreynslu.
Ef Bjarni væri semsagt skúringamaður væru 8.6 föld mánaðarlaun hans 1.720 þúsund. Til þess að setja þá upphæð í samhengi kostar ódýrasta gerðin af Toyota Yaris 1.920 þúsund. Sú fjárfesting sem Bjarni ræðst í með því leggja inn 370 milljónir til afláts vegna bankahrunsins er því sambærileg við að ómenntaður skúringamaður réðist í að kaupa ársgamlan Yaris.
janúar 6, 2009 klukkan 10:34 am |
svakalega er Bjarni falskur og ómerkilegur,heldur hann virkilega,að þjóðin láti blekkjast,þó hann hendi í okkur 370 milljónum,það er bara smá vasapeningur hjá honum,því hann á örugglega tugi milljarða í skattaparadísunum í Karíbahafinu,nei Bjarni komdu með annan betri,þessi er ekki mjög fyndinn
janúar 6, 2009 klukkan 10:37 am |
Gleymum ekki að taka inn í myndina að kallinn hefur líklega fært þetta yfir í Evrur eða fínar norskar krónur sem þýðir að fyrir honum eru þetta ekki nema 200 milljónir íslenskar.
janúar 6, 2009 klukkan 10:53 am |
nú er að koma í ljós að Bjarni á hús í London,sem er mettið á 215 milljarða og Baugur Group leigir húsið af Bjarna og svo á hann hús hér á Íslandi og trúlega á hann húsið í Noregi og kannski víðar,svo eftir þessu á hann nokkur hundruð milljarða hér og þar og er svo að hreykja sér af að henda í þjóðina 370 milljónum,þvílíkur loddari,ég held hann ætti að halda sér alveg í burtu frá Islandi,því við viljum ekki svona glæpamenn hér
janúar 6, 2009 klukkan 10:59 am |
Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann, en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: “Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim.”
En hann sagði þeim þessa dæmisögu: “Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim, sem týndur er, þar til hann finnur hann? Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér, er hann finnur hann. Þegar hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið sauðinn minn, sem týndur var.’ Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki hafa iðrunar þörf.
Týnd drakma
Eða kona, sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega, uns hún finnur hana? Og er hún hefur fundið hana, kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið drökmuna, sem ég týndi.’ Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun.”
Tveir synir
Enn sagði hann: “Maður nokkur átti tvo sonu. Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: ,Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna, sem mér ber.’ Og hann skipti með þeim eigum sínum. Fáum dögum síðar tók yngri sonurinn allt fé sitt og fór burt í fjarlægt land. Þar sóaði hann eigum sínum í óhófsömum lifnaði. En er hann hafði öllu eytt, varð mikið hungur í því landi, og hann tók að líða skort. Fór hann þá og settist upp hjá manni einum í því landi. Sá sendi hann út á lendur sínar að gæta svína. Þá langaði hann að seðja sig á drafinu, er svínin átu, en enginn gaf honum.
En nú kom hann til sjálfs sín og sagði: ,Hve margir eru daglaunamenn föður míns og hafa gnægð matar, en ég ferst hér úr hungri! Nú tek ég mig upp, fer til föður míns og segi við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Lát mig vera sem einn af daglaunamönnum þínum.’
Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn langt í burtu, sá faðir hans hann og kenndi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann. En sonurinn sagði við hann: ,Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn.’ Þá sagði faðir hans við þjóna sína: ,Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum. Sækið og alikálfinn og slátrið, vér skulum eta og gjöra oss glaðan dag. Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn.’ Tóku menn nú að gjöra sér glaðan dag.
En eldri sonur hans var á akri. Þegar hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann hljóðfæraslátt og dans. Hann kallaði á einn piltanna og spurði, hvað um væri að vera. Hann svaraði: ,Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefur slátrað alikálfinum, af því að hann heimti hann heilan heim.’
Þá reiddist hann og vildi ekki fara inn. En faðir hans fór út og bað hann koma. En hann svaraði föður sínum: ,Nú er ég búinn að þjóna þér öll þessi ár og hef aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefur þú aldrei gefið kiðling, að ég gæti glatt mig með vinum mínum. En þegar hann kemur, þessi sonur þinn, sem hefur sóað eigum þínum með skækjum, þá slátrar þú alikálfinum fyrir hann.’ Hann sagði þá við hann: ,Barnið mitt, þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt. En nú varð að halda hátíð og fagna, því hann bróðir þinn, sem var dauður, er lifnaður aftur, hann var týndur og er fundinn.’”
janúar 6, 2009 klukkan 11:06 am |
Nema hvað að nota Yaris til viðmiðunar Hateigsvegur.
janúar 6, 2009 klukkan 11:07 am |
Er og hefur Bjarni Ármannsson líka verið í viðskiptum við bandaríska fjárhagsfesta? Væri athyglisvert att rannsaka þau samskipti líka.
janúar 6, 2009 klukkan 11:11 am |
Vonandi heldurðu þig í burtu frá Íslandi sem lengst. Aldeilis lán að þú og hitt útrásarhyskið komst ekki yfir Orkuveituna líka.
janúar 6, 2009 klukkan 11:14 am |
“hús í London,sem er mettið á 215 milljarða”… slökum aðeins á, 215 milljarða? s.s. rúmlega Icesave reikningurinn, rúmlega hálf þjóðarframleiðsla. Hlýtur að vera svaka flott hús
janúar 6, 2009 klukkan 11:38 am |
370 millur fyrir að fá að koma heim og halda áfram að braska í skjóli auðtrúa þjóðar sem lítur nú á hann sem góða samverjann.
Við skulum ekki gleyma því að maðurinn er “hard core businessmaður” og EKKERT sem hann gerir er gert nema í von um “easy money”
janúar 6, 2009 klukkan 11:55 am |
ÖRN RAGNARSSON
Komdu sæll,
Getur þú sett í ljós upplýsingar um þessa eign bjarna í Bretlandi? Eða bara sent mér eh frekari upplýsingar um málið
Með fyrirfram þökk
J
janúar 6, 2009 klukkan 11:57 am |
Ég hef ekki á takteinum neina flökkusögu um úlfa í sauðargærum,
en í gær sáum við sauðslegan úlf sem gerði sér dælt við hjörðina.
janúar 6, 2009 klukkan 12:01 pm |
Einhverstaðar kom fram að Bjarni ætti nú orlofsshús sem Glitnir hefði átt fyrir norðan. Hann hefði fengið það í starfslokasamningnum?!!!
Getur þetta staðist? veit einhver meir um málið?
janúar 6, 2009 klukkan 12:10 pm |
Þeir sem eru syndlausir kasti fyrsta steinium. Bjarni hafði verið hættur í 18 mánuði þegar hrunið kom og hversvegna var hann rekinn ? Það var vegna þess að hann var orðinn hræddur um að partýið myndi enda svona. Hverjir ráku hann? Var það ekki Jón Ásgeir og félagar?. Ekki gleyma því að fólk tók þátt í þessu , þjóð sem er svo vel mentuð og upplýst , fólk lagði inná reikninga sem gáfu bestu ávöxtunia og voru að sjálfsögðu með mestu áhættuna. Ekki datt okkur í hug að vera með þettað verðtryggt og með um 7% vexti og stundum mun hærri. Þannig tókum við þátt i þessu
janúar 6, 2009 klukkan 12:35 pm |
Það er ekki til íbúðarhús sem metið er á 215 milljarða . Þú átt væntanlega við 215 milljónir
janúar 6, 2009 klukkan 12:48 pm |
sæll Jóhann Þór .
ég sá þetta á Eyjunni í morgun og Baugur er með þetta hús í leigu,get að öðru leiti ekki staðfest þetta,en ég vil ekki trúa því,að menn séu að ljúga hérna
janúar 6, 2009 klukkan 12:51 pm |
fyrirgefðu Jónas,já 215 milljónir auðvitað,en flott hús samt
janúar 6, 2009 klukkan 12:55 pm |
Bjarni segir að hann sé að greiða þær tekjur sem hann hafði frá Glitni eftir að hann hætti til baka.
Ef hann hefur fært þetta sem tekjur þá greiðir hann tekjuskatt af því líklega og því má reiknast til að þessi upp hæð sé uppreiknuð 610 milljónir og þar af fékk hann 370 og ríkið rest.
En ef 370 milljónir eru ekki nóg og þið viljið ekki sjá það… hvað hefði Bjarnir þurft að “skila” miklu ?
janúar 6, 2009 klukkan 1:02 pm |
Flott hjá Bjarna… menn ættu að taka þetta til fyrirmyndar. Fáránleg en skemmtileg samlíking með yarisinn… en engu að síður góður punktur.
janúar 6, 2009 klukkan 1:09 pm |
Þegar Bjarni flutti til Noregs, fékk hann væntanlega öllum milljörðunum sínum skipt í Nkr, Evrur eða annan gjaldeyri. Hann borgaði þá einungis u.þ.b. helming þess verðs í Ikr. sem gjaldeyririnn kostar í dag, þ.e. fyrir þessar 370 milljónir sem hann endurgreiddi núna lagði hann einungis út u.þ.b. 180 milljónir á þáverandi gengi. Ég legg til að Bjarni skoði hug sinn og endurgreiði hinn helminginn líka, þ.e. aðrar 370 milljón Ikr.
janúar 6, 2009 klukkan 1:12 pm |
Ég tel Bjarna vera meiri mann eftir þetta og þætti mér gaman að sjá einhverja hinna “auðmannanna” gera hið sama. Ef stjórn Glittnis samþykkir starfslokasamning sem er svo hár að ekki nær neinni átt skal fremur fara eftir á eftir stjórninni en ekki Bjarna því við vitum ÖLL að við myndum reyna að gera sem hagstæðastan samning fyrir okkur sjál.
janúar 6, 2009 klukkan 2:48 pm |
Örn Ragnarsson:
Húsið er metið á 215 milljónir, bara svo að við ýkjum þetta ekki uppúr öllu valdi ! sbr. http://eyjan.is/ordid/2009/01/06/baugur-leigir-hus-bjarna/
Páll Ásgeir:
“Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar námu tekjur Bjarna á árinu 2007 rétt rúmlega 43 milljónum á mánuði.”
Þetta eru áætlaðar tölur fyrir skatta, sem engin veit hvernig reiknaðar eru út. Þar fyrir utan væntanlega búið að greiða skatta af þessari upphæð sem Bjarni er að leggja til, þannig að eftir stendur 370 milljónir sem hann leggur til baka. Prófaðu að gamni að reikna 370 milljónir með skatti, þannig að upphæðin sem hann greiðir til baka, og “áætluð” laun hans standist. Því annað er án greidds skatts og hitt er að frádregnum skatti.
janúar 6, 2009 klukkan 3:03 pm |
Læatum Bjarna skila sem mestu. Hver vinnur svo mikið að hann eigi skilið að fá rúmlega 40.000.000 á mánuðu i laun? Þessir bankastjórar sögðust vera með þessi laun vegna þess að áhættan væri svo mikil og ábyrgðin, nú er ábyrgðin komin á okkur þjóðina og og áhættan svo að við eigum að krefja þetta lið um að borga til baka allt sem þeir tóku og láta þá sitja eftir með verkamannalaun, sjáum hvort að þeir geti lifað af því.
Nú er kominn tími til að kjöldraga þessa menn og draga á land allan þann sora sem þeir hafa í pokahorninu.
janúar 6, 2009 klukkan 3:58 pm |
Það er ekki hægt að benda á það að Bjarni Ármanns hafi verið látinn hætta vegna þess að hann sá fram að partýið myndi enda. Stuttu seinna fór hann í REI-dæmið, ætlaði að sameina það Geysir Green Energy og síðan aftur við FL-Group, vöxturinn átti að vera 4-6 faldur á tveimur árum (sjá nánar á http://www.helgivifill.wordpress.com).Neibb partýið var ekki búið fyrr en bankarnir hrundu og þá kemur hann til baka með skottið á milli fótanna.
janúar 6, 2009 klukkan 4:21 pm |
Eignir og skuldir viðskiptamanna Íslands eru þeirra mál, ekki mitt. Ég afþakka hvorutveggja, en takk samt.
VR
janúar 6, 2009 klukkan 4:50 pm |
Inga segir
Glansinn er horfinn af gulldrengnum Bjarna Ármannssyni. Iðrast hann í raun, eða er hann bara leiður yfir því að upp um hann komst?
Er fólk búið að gleyma að þegar Bjarni fór í feðraorlof og fékk hæðstu greiðslur sem greiddar höfðu verið frá Tryggingastofnun? Þetta var þegar hann var að byrja sinn glæsta bankastjóraferil og fékk yfir milljón á mánuði.
Seinna voru sett lög þar sem hámark orlofsgreiðsla til hátekjufólks var 1.5 milljón á mánuði.
Ætli Bjarni sjái sóma sinn í að skila þessari greiðslu aftur, hún kæmi þjóðinni vel núna þar sem ekkert er eftir, allt farið í að greiða sukk Bjarna og hans útrásarvina
janúar 6, 2009 klukkan 5:05 pm |
“kræst” hvað ég hugsaði honum þegjandi þörfina þegar ég var að horfa á kastljós í gærkveldi, vona bara að hann láti ekki sjá sig á okkar fagra landi framar nó er búið að gera okkur samt
janúar 6, 2009 klukkan 8:33 pm |
Þetta með Bjarna og skúringakarlinn er alls ekki sambærilegt, nema skúringakarlinn ætti tugi milljóna í cash og gæti staðgreitt Yarisinn án þess að finna fyrir því.
janúar 9, 2009 klukkan 4:51 pm |
Palli – gamli vin.
Mér virðist að besta refsing sem hægt væri að finna fyrir BA er að gera hann seðlabankastjóra á lágmarkslaunum og án fríðinda. Það er mín reynsla af löggæslu á Ísafirði í gamla daga að óknyttastrákarnir urðu enn harðari löggur og dyraverðir en þeir sem fyrir voru í þeim embættum.
gaui