Lúðvík Bergvinsson kom víða við í rómuðu innslagi í Kastljósi þar sem hann talaði utan af sér nýju fötin og sat eiginlega berstrípaður í settinu. Það var ógeðfelld sjón. Eitt af því fjölmarga sem Lúðvík færði í orð var að hann beindi spjótum sínum að Silfri Egils eða öllu heldur Agli Helgasyni fyrir ósanngjarnar árásir á það sem Lúðvík fannst augljóslega vera ósaknæmt athæfi og vönduð stjórnsýsla.
DV fylgir svo á hæla Lúðvíks og telur Silfur Egils hafa sett ofan í seinni tíð og bloggsíða hans sé löðrandi í nafnleysingjum og ómerkingum. Þeir dansa þarna skemmtilega í takt feðgarnir á DV og hinn sigldi þingmaður.
Mér finnst ekki ástæða til að skammast út í hinn ullhærða, þéttvaxna þáttastjórnanda. Þvert á móti finnst mér hann hafa staðið vaktina með sóma og engum hlíft.
Þegar ég var að alast upp vestur í Djúpi bjó Hákon heitinn í Reykjarfirði á næsta bæ. Hákon átti afbragðs góða smalahunda og gat sent þá langar leiðir hátt upp í brattar hlíðar til að bíta fast í hækilinn á bágrækum sauðum. Sagt var fyrir vestan að ef Móri Hákonar í Reykjarfirði sá ekki rollurnar sem átti að sækja þá tók húsbóndi hans hann upp og hélt honum í augnhæð sinni svo hann sæi verkefni sitt. Svo þaut Móri af stað eins og leiftur, þakklátur húsbónda sínum fyrir hjálpina.
Ég veit ekki af hverju mér datt þetta í hug þegar ég ég sá samsíða árásir DV og Lúðvíks og auðvitað er ekki víst að sami stórbóndinn hafi sigað þeim báðum. En erindi þeirra var það sama.
desember 11, 2008 klukkan 2:34 pm |
Hvað er það, Páll minn Ásgeir, sem gerir að allt verður bókstaflega brjálað um leið og einhver hnýtir í Egil Helgason?
Þú, Jónas, Illugi og öll hirðin og nafnlausu draugarnir sem hann er búinn að vekja upp í athugasemdakerfi sínu, hamstola vegna einhvers slúðurmola í DV? Nú er það svo að Egill er alveg hreint ágætur þáttastjórnandi en talar oft út úr rassgatinu á sér. Enda hvernig má annað vera? Miðað við bloggmagnið sem hann puðrar út nú um stundir. En… hann er gagnrýnandi Íslands sem ekki má gagnrýna! Er ekki eitthvað öfugsnúið við það?
Hefur þetta eitthvað með persónugerð Egils að gera? Hann náttúrlega er þeirrar náttúru að kunna að mjólka út hrósið þegar svo ber undir en á einhvern dularfullan hátt hefur hann komið því fyrir að það má ekki gagnrýna hann gagnrýnandann sjálfan. Jafnvel þó hann virðist nú kominn í þá stellingu að telja sig einhvers konar frelsishetju landsins.
Komdu nú með einhverja kenningu því þetta er glúrin gáta.
Kveðja,
Jakob
desember 11, 2008 klukkan 9:41 pm |
Jakob…. verður ekki að teljast lágmarkskrafa að fjölmiðill sem ætlar sér að gagnrýna annan fjölmiðil sé í það minnsta örlítið málefnalegur?
“Heyrst hefur” er ekki alveg að gera sig í þessu tilfelli….sérlega ekki þegar upplifunin svona almennt virðist vera þvert á það sem “heyrst hefur”
Silfrið hans Egils aldrei verið betra…. amk fyrir almenning. Reyndar minna um miðaldra jakkafatalufsur í þáttunum…. enda er það “eitthvað svo 2007″ eins og mætur maður myndi kannski orða það
desember 11, 2008 klukkan 10:09 pm |
Nokkuð laglegur pistill þetta.
desember 12, 2008 klukkan 2:58 pm |
Og kærar þakkir fyrir orðið “bágrækur”